Þjónustuskoðun og önnur þjónusta
Staðsetning
Þjónusta Nissan á Íslandi er hjá BL ehf. Sævarhöfða 2, Reykjavík.
Gengið er inn um aðalinnganginn.
Hægt er að panta tíma í gegnum vefformið hér eða í síma 525 8000.
Þjónustuskoðun
Við mælum með að komið sé með bílinn til reglubundins eftilits á 15.000 km fresti eða einu sinni á ári. Til að viðhalda verksmiðjuábyrgð framleiðanda innan ábyrgðatíma bílsins á að koma með bílinn í reglubundnar áskildar viðhaldsskoðanir sem hér segir.
Áskilið viðhald - Áskilið viðhald skal framkvæmt af viðurkenndum þjónustuaðila bílsins (sjá tengil með þjónustuaðila). Áskilið viðhald er nauðsynlegt að framkvæma til að viðhalda verksmiðjuábyrgð framleiðanda bifreiðarinnar. Áskilið viðhald samkvæmt töflunni hér að neðan eru svo kallaðar A og B skoðanir sem framkvæma þarf reglulega (sjá km í töflu).
(A) A skoðun er fyrst eftir ekna 15.000 km eða 1 ár, hvort sem fyrr verður. Síðan á 30.000 km eða 2ja ára fresti, hvort sem fyrr verður.
(B) B skoðun er ítarlegri en A skoðunin og er fyrst eftir ekna 30.000 km eða 2 ár, hvort sem fyrr verður. Síðan á 30.000 km eða 2ja ára fresti, hvort sem fyrr verður
(A) 15.000 km
(B) 30.000 km
(A) 45.000 km
(B) 60.000 km
(A) 75.000 km
(B) 90.000 km
(A) 105.500 km
o.s.frv.